Möguleg snjóflóðahætta í Mýrdal

21.02.2026

Nýtt

Möguleg snjóflóðahætta í Mýrdal

  • Búast má við staðbundinni snjóflóðahættu í dreifbýli í Mýrdal

  • Gul hríðarviðvörun fyrir Mýrdal og Mýrdalssand tekur gildi kl. 18:00 21. febrúar

Mikilli snjókomu og skafrenningi undan austan- norðaustanáttum er spáð í Mýrdal frá laugardagskvöldi fram á mánudag. Í Mýrdal getur skapast snjóflóðahætta á þekktum stöðum. Ekki er búist við að snjóflóðahætta skapist annars staðar á Suðurlandi.

Um er að ræða mögulega staðbundna hættu í nokkrum húsum í dreifbýli og haft hefur verið samband við ábúendur þar. Vegfarendur eru beðnir um að sýna varúð og dvelja ekki eða leggja bílum undir bröttum hlíðum sem snúa til vesturs.

Spár gera ráð fyrir norðaustan 10-18m/s og snjókomu uppúr kl 18:00 í kvöld, laugardag, og fram á mánudagsmorgun en þá hlýnar og fer að draga úr vind. Veðurstofan hefur gefið út gula hríðarviðvörun fyrir Mýrdal og Mýrdalssand sem tekur gildi í dag kl 18:00.

Spá fyrir uppsafnaða úrkomu til kl 00:00 23. febrúar