Snjóflóðahrina á norðanverðum Vestfjörðum og Norðurlandi

17.03.2026

Nýtt

Snjóflóðahrina á norðanverðum Vestfjörðum og Norðurlandi

Mörg snjóflóð hafa fallið á norðanverðum Vestfjörðum og utanverðum Tröllaskaga frá því á fimmtudag í síðustu viku. Samtals eru 122 snjóflóð skráð hjá Veðurstofunni á þessu tímabili, en líklega eru flóðin talsvert fleiri. Snjóflóð sem falla fjarri byggð og vegum sjást oft seint eða jafnvel aldrei og í skafrenningi og snjókomu getur fennt hratt yfir ummerki flóðanna.

Á meðfylgjandi kortum er staðsetning skráðra snjóflóða merkt með mislitum punktum eftir dagsetningu flóðanna.
Flest snjóflóðin á Vestfjörðum hafa verið fremur lítil eða meðalstór, en mun stærri flóð hafa fallið á utanverðum Tröllaskaga enda snjóaði mun meira þar. Mörg snjóflóð hafa raskað samgöngum og hér er upptalning vega þar sem vitað er að eitt eða fleiri snjóflóð hafa fallið frá því á fimmtudag:

  • Sjötúnahlíð í Álftafirði

  • Súðavíkurhlíð milli Súðavíkur og Ísafjarðar

  • Eyrarhlíð milli Ísafjarðar og Hnífsdals

  • Flateyrarvegur

  • Siglufjarðarvegur

  • Ólafsfjarðarvegur milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur

Einnig hafa snjóflóð fallið á vegi þar sem umferð er minni s.s. veginn um Spilli í Súgandafirði, Skíðaveginn upp að gönguskíðasvæði Ísfirðinga og Kleifaveg í Ólafsfirði.

Stærstu snjóflóðin sem sést hafa í þessari hrinu, féllu yst á Tröllaskaga. Mjög stórt flóð sást á laugardagsmorgun úr Selskál í Siglufirði sem lokaði veginum og var um 200 m breitt og 4 m þykkt. Stórt snjóflóðið féll á varnargarðana Litla- og Stóra-Bola á Siglufirði á sunnudag og nokkur stór snjóflóð féllu í Ólafsfirði ásamt flóðum yfir Ólafsfjarðarveg, Dalvíkurmegin.

Á morgun, miðvikudag er spáð skaplegu veðri og munu snjóflóðasérfræðingar Veðurstofunnar nýta tækifærið til þess að leita að ummerkjum um fleiri snjóflóð, og kortleggja þau sem merkilegust þykja.

Í góðviðri eftir mikla snjósöfnun getur verið freistandi fyrir marga að halda til fjalla, en ástæða er til þess að fara varlega og forðast brattar hlíðar.  Gera þarf ráð fyrir því að snjór verði óstöðugur og að fólk geti sett af stað snjóflóð á ferð í bröttum hlíðum.

Á fimmtudag er spáð hláku og þá má búast við því að vot snjóflóð falli.  Þegar frystir á ný aðfaranótt föstudags ætti að draga úr snjóflóðahættu.

Kort sem sýnir snjóflóð síðustu daga á norðanverðum Vestfjörðum

Kort sem sýnir snjóflóð síðustu daga á utanverðum Tröllaskaga

default

default

Um 200 m breitt snjóflóð féll yfir Siglufjarðarveg úr Selskál. <em>Ljósm: Gestur Hansson</em>