Snjógryfja á Hlíðarfjalli 15. febrúar.

15.02.2026

Nýtt

Snjógryfja á Hlíðarfjalli 15. febrúar.

Gryfja var tekin í Hlíðarfjalli í austlægu viðhorfi í 670 m hæð. Snjóþekjan var 140 cm djúp og gryfjan um 60 cm. Gryfjan sýndi um 25 cm af nýlegum snjór ofan á harðfenni. Samþjöppunarpróf sýndi brot og samfall í stöplinum við miðlungsálag á um 15 og 26 cm dýpi. 

Ekki var gerð nákvæm greining á snjókristöllum í þessari gryfju en kantaðir kristallar hafa fundist til fjalla undanfarna daga og líkur eru á áframhaldandi köntun kristalla í köldu veðri næstu daga.