26.02.2026
Nýtt
Gryfja var tekin í Hlíðarfjalli í suðaustlægu viðhorfi í 750 m hæð. Snjóþekjan var 118 cm djúp og gryfjan um 116cm. Gryfjan sýndi um 9 cm vindfleka ofan við lagskipta snjóþekju. Útvíkkað samþjöppunarpróf gaf slétt brot á 9 cm við sögun. Ekki var gerð nákvæm greining á snjókristöllum. Veikt lag á 34 cm neðan við íslag gaf sig á skófluprófi en ekki í útvíkkaða samþjöppunarprófinu.

