Snjógryfja á Mikladal við Patreksfjörð 10. mars

11.03.2026

Nýtt

Snjógryfja á Mikladal við Patreksfjörð 10. mars

Snjógryfja var tekin á Mikladal ofan við Patreksfjörð í gæreftirmiðdag, 10. mars. Hún sýndi 100 cm af snjó, hann var rakur í gegn og blautur neðst. Snjórinn var mjúkur efst en þéttist þegar neðar dró, mýktist svo aðeins aftur í blauta laginu neðst. Stöðugleikapróf gáfu litla svörun og þurfti mikið átak til að fá brot.