15.02.2026
Nýtt
Gryfja var tekin á Öxnadalsheiði þann 14. febrúar í um u.þ.b. 660 m hæð í SV-vísandi hlíð. Gryfjan sýndi veikt lag á um 60-70 cm dýpi, á milli hjarns og yfirliggjandi vind- og nýsnævisfleka. Samþjöppunarpróf gaf samfall í stöpli við miðlungsálag á um 70 cm. Útvíkkað samþjöppunarpróf sýndi ekkert brot.
Skarpur hitastigull var í snjóþekjunni og kantaðir kristallar gætu því myndast/stækkað í áframhaldandi köldu veðri.

