28.02.2026
Nýtt
Í gær 27.2. var snjógryfja tekin uppi á Öxnadalsheiði í austlægu viðhorfi í 576m hæð. Snjóþekjan var 182 cm djúp og gryfjan 84 cm. Veikt lag með köntuðum kristöllum fannst neðan við hjarn og vindfleka á um 12 cm dýpi. Lagið brotnaði og breiddist út við 18 slög í útvíkkuðu samþjöppunarprófi. Annað veikt lag fannst á 18 cm dýpi og gaf það útbreitt brot á 28 slögum.
Gryfjan gefur vísbendingar um að óstöðugir vindflekar geti verið til staðar ofan við veik lög sem samræmist vel öðrum nýlegum gryfjum á svæðinu. Undanfarið hefur skafið í flest viðhorf á Norðurlandi og viðbúið að óstöðuga vindfleka sé víða að finna ofan við viðvarandi veik lög. Þá geta kantaðir kristallar þróast enn frekar í köldu veðri sem spáð er í vikunni.

