Snjógryfja á Öxnadalsheiði 17. janúar

17.01.2026

Snjógryfja á Öxnadalsheiði 17. janúar

Snjógryfja var gerð í Heiðarfjalli á Öxnadalsheiði þann 17. janúar. Gryfjan var gerð í u.þ.b. 630 m hæð í A-vísandi hlíð. Hitastigull var frekar brattur efst í snjóþekjunni. Gryfjan sýndi niðurbrotinn snjó ofan á þunnu lagi af rúnnuðum snjó. Þar fyrir neðan var harðfenni. Gert var útvíkkað samþjöppunarpróf sem sýndi ekkert brot.