Snjógryfja frá Burstabrekkudal 18. mars

19.03.2026

Nýtt

Snjógryfja frá Burstabrekkudal 18. mars

Gryfjan var tekin í SV vísandi hlíð austanvert í Burstabrekkudal í um 440 m hæð. Hún sýnir ekki áberandi veikleika, stöðugleikapróf gáfu litla útbreiðslu brota og miðlungs eða mikið álag þurfti til. Nokkuð hár hitastigull mældist þó á 80 cm dýpi þar sem minnst álag þurfti í stöðugleikaprófum.