12.02.2026
Nýtt
Gryfja var tekin í Hlíðarfjalli í austlægu viðhorfi í 960m hæð. Snjóþekjan var 145cm djúp og gryfjan 100cm. Efst var u.þ.b 30cm nýr snjór sem lá ofan á hjarni. Nýi snjórinn var léttur púðursnjór en stífnaði lítillega með dýpt. Kantaðir kristallar lágu ofan á hjarninu. Samþjöppunarpróf sýndi slétt brot á 5 slögum og 7 slögum við endurtekningu prófsins. Ekki var gert útvíkkað próf en þó svo að yfirborðssnjórinn hafi ekki verið mjög stífur þar sem gryfjan var tekin er mögulegt að brot geti breiðst út. Skarpur hitastigull var í snjóþekjunni og kantaðir kristallar gætu því myndast/stækkað í áframhaldandi köldu veðri.

