Snjógryfja í Botnsdal inn af Súgandafirði 14. mars

14.03.2026

Nýtt

Snjógryfja í Botnsdal inn af Súgandafirði 14. mars

Snjógryfja var tekin í Botnsdal inn af Súgandafirði á Vestfjörðum 14. mars, í 400 m hæð og norðurvísandi aflíðandi hlíð. Gryfjan sýndi mikinn nýjan lagskiptan vindskafinn snjó ofan á eldri snjó sem gengið hefur í gegnum hlýindi. Veikleikar fundust innan vindflekanna og á mörkum þeirra við eldri snjó, á 40 cm og 125 cm dýpi. Útvíkkað samþjöppunarpróf gaf ekki afgerandi niðurstöður um að veikleikarnir væru viðkvæmir fyrir broti, en snjóflóðavirkni á svæðinu síðustu daga bendir þó til að enn séu varasamar snjóflóðaaðstæður á norðanverðum Vestfjörðum.

Í dag hefur verið fremur hlýtt á svæðinu og snjórinn var orðinn rakur og nokkuð þungur.