Snjógryfja í Hlíðarskál 10. apríl

11.04.2026

Nýtt

Snjógryfja í Hlíðarskál 10. apríl

Snjógryfja var gerð í Hlíðarskál í gær 10. apríl í rúmlega 900 m hæð og austurvísandi brekku. Á svæðinu var víðast stífur vindfleki ofan á mjúkum snjó. Útvíkkað samþjöppunarpróf gaf slétt brot við lítið álag á þessum lagmótum og brotið breiddi úr sér. Þetta veika lag gæti orðið til vandræða þegar nýr snjór bætist ofan á. Veðurspár gera ráð fyrir norðaustan snjókomu á sunnudag.