21.02.2026
Nýtt
Snjógryfja var tekin í um 877m hæð undir Illviðrishnjúki við Siglufjörð í SA vísandi hlíð. Gryfjan sýnir um 10cm þykka lausamjöll ofan á þunnu íslagi og lagskiptan snjó undir. Stöðugleikapróf gaf brot á 30cm dýpi við miðlungs álag, milli tveggja fleka. Skíðamenn hafa tilkynnt vúmp hljóð í Skarðsdal og veikleikar hafa einnig fundist á Flateyjarskaga. Í dag féll náttúrulegt flekaflóð í Hvanneyrarskál ofan Siglufjarðar sem var með um 200m langt brotstál. Ljóst er að veikleikar eru víða á Tröllaskaga og Norðurlandi og er útivistafólk beðið um að fara varlega.
