18.04.2026
Nýtt
Snjógryfja var gerð í Kistufelli í gær 17. apríl í 670 m hæð og suðurvísandi brekku. Hún sýndi stífan jafnhita snjó, sem þó var enn aðeins lagskiptur. Það var 3 cm þykkt krapalag á 40 cm dýpi og þunnt íslag rétt fyrir neðan. Stöðugleikapróf gáfu ekki svörun en skoplapróf gaf slétt brot við miðlungs átak.
