11.04.2026
Nýtt
Snjógryfja var gerð í Oddsskarði í gær 10. apríl í 760 m hæð og suðurvísandi brekku. Hún sýndi stífan jafnhita snjó, sem þó var enn aðeins lagskiptur. Ofan á var hörð þunn skel sem brotnaði auðveldlega. Stöðugleikapróf gáfu ekki svörun á öðrum stöðum neðar í snjóþekjunni.
Frá laugardagseftirmiðdegi fram á sunnudag er spáð mikilli snjókomu til fjalla. Búast má við að nýir óstöðugir vindflekar byggist upp ofan á stífa snjónum sem nú er á svæðinu.
