BETA
17.01.2026

2026-01-17_1337_Oddskard-grifja-2
Snjógryfja var gerð í Háhlíðum í Oddsskarði þann 17. janúar. Gryfjan var gerð í u.þ.b. 510 m hæð í SA-vísandi hlíð. Gryfjan var um 115 cm djúp en heildarsnjódýpt á þessum stað var um 310 cm. Gryfjan sýndi litla rúnnaða kristalla ofan á eldri snjó. Gryfjan sýnir ekki háan hitastigul. Útvíkkað stöðugleikapróf var gert. Brot kom í stöpulinn á um 80 cm dýpi við miðlungs álag en það breiddist ekki út.

2026-01-17_1337_Oddskard-gryfja