21.02.2026
Snjógryfja var tekin við skíðasvæðið í Oddsskarði seinnipart 20. janúar. Hún sýndi stífan, nokkuð einsleitan og vel samanbundinn snjó, með rúmlega 10 cm af lausamjöll ofan á. Útvíkkað samþjöppunarpróf gaf brot við miðlungs álag á 25 cm dýpi en það breiddi ekki úr sér.
