08.02.2026
Nýtt
Síðustu daga hefur snjóað töluvert til fjalla á Austfjörðum en snjólétt er á láglendi. Snjóathuganir gefa til kynna að snjóþekjan er nokkuð óstöðug. Áframhaldandi él og snjókoma munu auka farg og viðhalda þessum óstöðugleika um sinn en snjóflóðaspáin fyrir Austfirði spáir áfram töluverðri snjóflóðahættu með nýsnævis- og skafsnjóvanda á flestum viðhorfum ofan 500 m.
Snjógryfja var gerð í Háhlíðum í Oddsskarði þann 7. febrúar. Gryfjan var gerð í u.þ.b. 614 m hæð í S-vísandi hlíð. Gryfjan var um 110 cm djúp en heildarsnjódýpt á þessum stað var um 410 cm. Brot komu á þremur stöðum við 3 (12 cm), 16 (19 cm) og 22 (65 cm) slög. Snjórinn virðist geta verið óstöðugur á svæðinu enn um sinn en þó að brot hafi ekki breiðst út í útvíkkuðu stöðugleikaprófi er ekki hægt að útiloka að það geri það á öðrum stöðum.
Athugið að snjógryfjur eru einungis vísbending um stöðugleika snævar á einum stað og nauðsynlegt að hafa aðgát þegar ferðast er um í brattlendi, gera eigin athuganir og/eða forðast snjóflóðalandslag.

Allar gryfjur Veðurstofunnar eru birtar hér en einnig má sjá þær allar á korti á vef Propagation labs. Fólk sem starfar við snjóathuganir, leiðsögn eða skíðasvæði er hvatt til þess að nýta þennan vef við skráningar snjógryfja og snjóathugana.