04.03.2026
Nýtt
Snjógryfja var tekin nálægt gönguskíðaskálanum í Seljalandsdal (278 m h.y.s), miðvikudaginn 4. mars.
Gryfjan sýndi nýjan, léttan snjó ofan á gömlu hjarnlagi og þéttan, rúnnaðan snjó þar undir. Nýi snjórinn virðist bindast þeim eldri nokkuð vel en stöðugleikapróf gáfu litlar niðurstöður. Búast má við því að þessi nýi snjór liggi á þurrari snjó eða vindflekum ofarlega til fjalla þar sem éljað hefur nokkuð upp á síðkastið í ýmsum áttum.
Nokkur snjóflóð féllu á svæðinu í þessum snjó aðfaranótt miðvikudags þegar snjóaði í fremur hvössum, suðlægum áttum.
