22.02.2026
Nýtt
Snjógryfja var tekin í Illviðrishnjúki ofan Siglufjarðar í morgun, 22. febrúar. Hún var í takt við gryfjunar sem teknar hafa verið á svæðinu síðustu daga, sýndi 20 cm af nýlegum snjó sem er farinn að þéttast ofan á eldri þéttari snjó. Samþjöppunarpróf gaf slétt brot við miðlungs álag á 40 cm dýpi.
M.v. snjóflóðavirkni og athuganir virðast víða á Tröllaskaga og sérstaklega á Flateyjarskaga vera útbreiddir veikleikar og aðstæður fyrir breið flekaflóð, þótt líka séu staðir þar sem snjórinn er nokkuð stöðugur. Útivistarfólk er hvatt til að fara áfram varlega og meta aðstæður á hverjum stað.
