21.02.2026
Nýtt
Snjógryfja var tekin við Gúll í Stafdal seinnipart 20. janúar. Gryfjan var tekin í 400m hæð í austurvísandi hlíð. Hún sýndi lagskiptan snjó ofan á stífu hjarni með um 10 cm af lausasnjó ofan á og á um 50cm dýpi var þunnt íslag. Stöðugleika próf gaf brot við miðlungs álag á 40 cm dýpi og mátti sjá hagl í brot laginu. Nokkur flóð hafa fallið á svæðinu í um 700-800 m hæð sem bendir til að veikleikar eru víðar ofar til fjalla.
