15.04.2026
Nýtt
Gryfja í 840 m hæð og vesturvísandi brekku á Múlakollu sýndi þéttan lagskiptan snjó. Snjórinn var almennt í voraðstæðum og einsleitur. Skari var á 80 cm dýpi og mjúkur snjór þar undir. Talsverð umferð skíðamanna var í dalnum en engin nýleg snjóflóð sáust. Samþjöppunarpróf gaf ekki svörun. Mörg lausasnjóflóð féllu á Tröllaskaga 13. apríl í hlýindum og sólskini eftir snjókomu 12. apríl.

