07.03.2026
Nýtt

Snjógryfja tekin í 840 m hæð sýnir tvö veik lög, það dýpra á 50 cm dýpi, niður við hjarn. Þar sjást kantaðir kristallar og bikarkristallar (djúphrím). Lagið gefur slétt brot við mikið álag í útvíkkuðu samþjöppunarprófi. Á yfirborði er skæni af skafsnjó ofaná þunnu hjarnlagi og undir því veikt lag með köntuðum kristöllum.