26.03.2026
Nýtt
Snjógryfja var tekin miðvikudaginn 25. mars, undir Kistufelli inn af Skutulsfirði á Vestfjörðum. Gryfjan var í 680 m hæð og suðurvísandi brekku. Gryfjan sýndi lagskiptan nokkuð stífan snjó með 22 cm af mýkri snjó ofan á. Hláka 19. mars virðist hafa verkað nokkuð djúpt ofan í snjóþekjuna. Þrjú veik lög fundust. Veika lagið á 22 cm dýpi brast við miðlungs álag á samþjöppunarprófi og brotið var slétt. Í útvíkkuðu samþjöppunarprófi kom brot á sama lagi við miðlungs álag en það breiddi þó ekki úr sér. Hin veiku lögin voru dýpra, á tæplega 50 cm dýpi og 125 cm dýpi. Stöðugleikapróf gáfu ekki svörun þar en þegar skóflublaði var stungið aftan við stöpul að prófunum loknum komu slétt brot á báðum stöðum. Ólíklegt er talið að snjóflóð falli á þessum dýpri veikleikum en ef það gerist geta þau orðið stór.
Frekar lítil snjóflóðavirkni hefur verið á norðanverðum Vestfjörðum allra síðustu daga. Snjókoma og skafrenningur frá og með fimmtudegi 26. mars getur hins vegar safnað nýjum snjó ofan á undirliggjandi veikleika og aukið aftur á snjóflóðahættu.
