Snjógryfjur á Norðurlandi 28. mars

28.03.2026

Nýtt

Snjógryfjur á Norðurlandi 28. mars

Nokkrar snjógryfjur voru teknar í dag á Norðurlandi.

Gryfja í 500 m hæð og vesturvísandi brekku í Burstabrekkudal sýndi þéttan lagskiptan snjó. Slétt brot komu á nokkrum stöðum við miðlungs álag, bæði á samþjöppunarprófi og þegar skóflu var stungið aftan við snjósúlu þegar verið var að einangra stöpul fyrir stöðugleikapróf. Útvíkkað samþjöppunarpróf sýndi þó ekki útbreiðslu. Talsverð umferð vélsleða var í dalnum en engin snjóflóð sáust. Eina snjóflóðið sem sést hefur í Ólafsfirði í dag var í Arnfinnsfjalli í suðausturvísandi brekku.

Snjógryfja í Illviðrishnjúki í 820 m hæð og suðausturvísandi brekku sýndi líka fremur þéttan lagskiptan snjó. Samþjöppunarpróf gaf slétt brot við miðlungs álag á 25 cm dýpi. Engin snjóflóð hafa sést í kringum Siglufjörð í dag.

Gryfja úr Glerárdal er væntanleg og verður sett inn á eftir.

Veðurspár gera ráð fyrir snjókomu og austan skafrenningi í kvöld og nótt. Gera má ráð fyrir að snjóflóðahætta aukist tímabundið meðan það gengur yfir.