28.03.2026
Nokkrar snjógryfjur voru teknar í dag á Norðurlandi.
Gryfja í 500 m hæð og vesturvísandi brekku í Burstabrekkudal sýndi þéttan lagskiptan snjó. Slétt brot komu á nokkrum stöðum við miðlungs álag, bæði á samþjöppunarprófi og þegar skóflu var stungið aftan við snjósúlu þegar verið var að einangra stöpul fyrir stöðugleikapróf. Útvíkkað samþjöppunarpróf sýndi þó ekki útbreiðslu. Talsverð umferð vélsleða var í dalnum en engin snjóflóð sáust. Eina snjóflóðið sem sést hefur í Ólafsfirði í dag var í Arnfinnsfjalli í suðausturvísandi brekku.

Snjógryfja í Illviðrishnjúki í 820 m hæð og suðausturvísandi brekku sýndi líka fremur þéttan lagskiptan snjó. Samþjöppunarpróf gaf slétt brot við miðlungs álag á 25 cm dýpi. Engin snjóflóð hafa sést í kringum Siglufjörð í dag.

Tvær gryfjur voru teknar í Glerárdal. Sú fyrri var í Kvarnárdal í 1350m hæð í austurvísandi hlíð Kerlingar. Í þessu viðhorfi var snjóþekjan þykk og búið að safnast mikið í undanfarinni lægðatíð. Í efstu lögum snjóþekjunnar var lausamjöll og lagskiptir vindflekar þar neðan við sem lágu ofan á þunnu lagi af köntuðum kristöllum. Neðarlega í snjóþekjunni fannst djúphrím sem var þó vel brúað af efri lögum. Engin niðurstaða fékkst í útvíkkuðu samþjöppunarprófi.

Seinni gryfjan var tekin í 1270m hæð í vesturvísandi hlíð neðan Kerlingar. Snjóþekjan var mun grynnri í þessu viðhorfi. Líkt og í fyrri gryfjunni var lausamjöll ofan við vindfleka. Neðst fannst djúphrím sem sýndi þó gott viðnám við ofanáliggjandi lag. Útvíkkað samþjöppunarpróf gaf enga niðurstöðu.

Loks var gryfja tekin af skíðagæslu Hlíðarfjalls í A-viðhorfi í 650m hæð ofan við innkomu í Fjallkonulyftuna. Gryfjan sýndi lausamjöll ofan við vindfleka og hjarn. Samþjöppunarpróf gaf niðurstöðu á mörkum nýsnævis og undirliggjandi vindfleka (CT15) og neðar í snjóþekjunni fékkst brot á 70cm dýpi (CT12).

Eftir endurteknar lægðir, mikla snjókomu og skafrenning er ljóst er að vindflekar geta verið óstöðugir um sinn. Þá eru viðvarandi veik lög enn til staðar víða á Norðurlandi þó þau sýni fremur litla tilhneigingu til að brotna við álag. Þar sem snjóþekjan er þynnri getur verið grynnra á þessi veiku lög og þá líklegra að brot verði við álag. Stór snjóflóð geta orðið ef viðvarandi veik lög gefa sig.
Spáð er áframhaldandi lægðagangi í komandi viku. Á þriðjudag er búist við skammvinnri hláku og líklegt að snjóþekjan veikist tímabundið í kjölfar þess en styrkist um leið og frysta tekur á ný.