05.02.2026
Nýtt
Í kvöld, fimmtudagskvöld, er spáð töluverðri úrkomu á austanverðu landinu. Mest ætti að falla sem snjór en líklega rignir að hluta til á láglendi. Á Austfjörðum er nú þegar talsverður snjór ofarlega í fjöllum en snjólétt á láglendi og neðantil í fjöllum. Reikna má með að snjóflóð geti fallið í úrkomunni í kvöld en ekki er búist við að þau verði mjög stór.
Úrkomubakkin fer áfram vestur yfir landið og mun snjóa til fjalla í flestum landshlutum en víðast verður þetta lítil úrkoma. Almennt er lítill snjór á landinu miðað við árstíma og snjór víðast stöðugur. Undanfarið hafa verið aðstæður fyrir myndun yfirborðshríms, töluvert frost og fremur hægur vindur. M.a. hefur frést af yfirborðshrími á Norðurlandi. Yfirborðshrím myndast þegar raki úr loftinu þéttist á yfirborði og frýs. Það er viðkvæmt og brotnar auðveldlega í vindi en ef það grefst óbrotið undir nýjum snjó getur það verið varasamt fyrir fólk á ferð í fjalllendi.