Svæðisbundin snjóflóðaspá komin í sumarfrí

01.06.2026

Nýtt

Svæðisbundin snjóflóðaspá komin í sumarfrí

Gerð svæðisbundinna snjóflóðaspáa er komin í sumarfrí. Nokkuð bætti á snjó á austurlandi í lok maí mánaðar og geta leynst afmarkaðir flekar ofarlega í fjöllum þegar þessi frétt er skrifuð. Snjór er talinn stöðugur víðast hvar þó enn geti fallið lítil vot lausaflóð í bröttum brekkum þar sem sól bakar hlíðar eða þegar leysing verður mikil. Einnig þarf að fara með gát ef snjóar til fjalla ofan á vorsnjóinn því snjóflekar sem myndast ofan á eldri snjó snemma sumars verða gjarnan óstöðugir tímabundið. Snjóflóðaspá verður næst gefin út 15. október.

Ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands starfar áfram yfir sumarið en sinnir þá fyrst og fremst skriðuvöktun. Snjóflóð sem fréttist af verða áfram skráð hér á síðunni. Hafa má samband við ofanflóðavaktina í síma 522-6000 eða með töluvpósti á snjoflod@vedur.is og eru upplýsingar um snjóflóð, skriðuföll og ofanflóðaaðstæður alltaf vel þegnar.

Einnig er hægt að nota tilkynningaformið hér að neðan