Tímabundinn flutningur á bylgjuvíxlmælitæki frá Seyðisfirði til Eskifjarðar

30.04.2026

Tímabundinn flutningur á bylgjuvíxlmælitæki frá Seyðisfirði til Eskifjarðar

Í morgun, fimmtudaginn 30. apríl, var bylgjuvíxlmælitækið (e. GB-InSAR) sem staðsett er í Vestdal flutt til Eskifjarðar. Mælitækið mælir breytingar á yfirborði í Strandartind og ytri hluta Neðri-Botna. Flutningur á mælitækinu til Eskifjarðar er tímabundinn. Bylgjuvíxlmælitækið mun vera á Eskifirði í eina viku og mæla breytingar á yfirborði hlíðanna sem eru ofan við byggðina. Þetta er gert árlega til að nýta mælitækið sem best á svæðinu, og er gert á þessum árstíma vegna skaplegra aðstæðna þ.e. gróðurþekju.

Þessi tímasetning var valin þar sem lúpínan er ekki farin að spretta og hefur því ekki áhrif á mælingarnar. Jafnframt eru veðurhorfur næstu daga afar hagstæðar fyrir flutninginn, en spáð er lítilli úrkomu, takmörkuðum leysingum og svölu veðri.

Skriðuvakt gefur út uppfærslu þegar búið er að flytja mælitækið aftur til Seyðisfjarðar að viku liðinni.