18.06.2026
Nýtt
Úrkoma á austan- og norðaustanverðu landinu fram á laugardagsmorgun
Engar skriðutilkynningar borist skriðuvaktinni
Uppsöfnuð úrkoma nokkur og fylgst er vel með aðstæðum
Skriðuhætta getur aukist eftir því sem líður á veðrið
Slydda eða snjókoma efst á fjallatoppum
Rigning hefur verið á austanverðu landinu frá því í gær, miðvikudaginn 17. júní. Þónokkur úrkoma hefur mælst á svæðinu, en hún hefur ekki valdið vandræðum. Engar tilkynningar um skriður eða grjóthrun hafa borist skriðuvakt Veðurstofunnar. Spár gera ráð fyrir áframhaldandi úrkomu fram á aðfaranótt laugardags.
Úrkoma verður fremur samfelld á norðaustan- og austanverðu landinu, en mesta ákefðin er væntanleg snemma á föstudagsmorgni á norðanverðum Austfjörðum, þar sem hún getur farið yfir 5 mm/klst. í nokkrar klukkustundir. Að öðru leyti verður úrkomuákefð fremur hófleg, eða 2–4 mm/klst., en þar sem úrkoman varir í lengri tíma getur uppsöfnuð úrkoma orðið nokkur.
Hiti á láglendi næsta sólarhringinn verður svipaður og verið hefur og því má búast við slyddu eða snjókomu efst á fjallatoppum á norðan- og austanverðu landinu. Á morgun má búast við að það fari að hlýna og mun þá rigna upp í fjallatoppa. Á aðfaranótt laugardags gerir spáin ráð fyrir að stytti upp á austanverðu landinu, en áfram má búast við vætu eða minniháttar rigningu á norðanverðu landinu.
Lítil úrkoma hefur verið á landinu undanfarnar vikur, en leysingar hafa verið áberandi þar sem mikill snjór safnaðist til fjalla í vetur, sérstaklega á austanverðu landinu. Með áframhaldandi leysingum samhliða rigningu má búast við auknu afrennsli á svæðum þar sem þessir þættir fara saman. Grunnvatnsstaða hefur hækkað lítillega á Austfjörðum síðastliðinn sólarhring, en samkvæmt mælingum á Seyðisfirði og í Eskifirði hefur hún almennt verið fremur lág. En búast má við því að grunnvatnsstaða muni hækka á næstu dögum.
Samspil leysinga og úrkomu getur leitt til aukinnar mettun jarðvegs og aukins afrennslis. Skriðuhætta er ekki talin mikil að svo stöddu, en búast má við að hún geti aukist eftir því sem jarðvegur mettast af vatni. Ekki er hægt að útiloka grjóthrun á þekktum grjóthrunsstöðum eða að minni jarðvegspildur geti fallið í veðrinu næstu daga.
Skriðuvakt Veðurstofunnar fylgist áfram náið með þróun mála.

Uppsöfnuð úrkoma næstu 72 klst samkvæmt UWC/IG spálíkaninu.
Veðurstofan þiggur gjarnan tilkynningar um ofanflóð. Hægt er að hafa samband í síma 522-6000 á opnunartíma skiptiborðsins (https://www.vedur.is/um-vi/hafa-samband/) eða senda tölvupóst með upplýsingum á netfangið skriduvakt@vedur.is. Gott er að láta fylgja mynd af flóðinu (skriðunni, grjóthruninu) og nákvæma staðsetningu auk tímasetningar, hvenær ofanflóðið féll eða hvenær fólk varð vart við það. Einnig er hægt að tilkynna ofanflóð með þessu formi hér.