17.06.2026
Nýtt
Úrkoma á austan- og norðaustanverðu landinu fram að helgi
Ekki er spáð mikilli ákefð, en uppsöfnuð úrkoma getur orðið talsverð
Aukin skriðuhætta eftir því sem líður á veðrið
Slydda eða snjókoma efst í fjallatoppum
Lægð nálgast landið í dag, miðvikudaginn 17. júní, og mun færast upp með austurströndinni á næstu dögum, en henni fylgir talsverður raki og stíf norðaustanátt. Spár gera ráð fyrir rigningu á öllu austan- og norðaustanverðu landinu næstu þrjá sólarhringa, eða fram að helgi. Mest verður úrkoman til fjalla, á annesjum á Norðausturlandi og á Austfjörðum en einnig má gera ráð þónokkurri rigningu á láglendi.
Úrkomuákefð verður svipuð næstu daga, eða um 2–3 mm á klukkustund. Þar sem úrkoman verður samfelld í allt að þrjá sólarhringa gæti uppsöfnuð úrkoma orðið talsverð, ef spáin gengur eftir. Hiti á láglendi verður á bilinu 4–8°C og því má búast við slyddu eða snjókomu efst á fjallatoppum á norðan- og austanverðu landinu.
Lítil úrkoma hefur verið á landinu undanfarnar vikur, en leysingar hafa verið áberandi þar sem mikill snjór safnaðist til fjalla í vetur, sérstaklega á austanverðu landinu. Með áframhaldandi leysingum samhliða rigningu má búast við auknu afrennsli á svæðum þar sem þessir þættir fara saman. Grunnvatnsstaða er almennt fremur lág á Austfjörðum samkvæmt mælingum á Seyðisfirði og Eskifirði, og líklegt er að staðan sé svipuð á Norðurlandi þar sem lítið hefur rignt.
Skriðuhætta er ekki talin vera mikil næsta sólarhringinn, en búast má við að hún aukist eftir því sem úrkoman varir lengur og jarðvegur mettast af vatni. Ekki er hægt að útiloka grjóthrun á þekktum grjóthrunsstöðum, en erfitt er að spá nákvæmlega fyrir um slíkt.
Skriðuvakt Veðurstofunnar mun fylgjast náið með þróun mála næstu daga.

Uppsöfnuð úrkoma næstu 24 klst samkvæmt UWC/IG spálíkaninu.

Uppsöfnuð úrkoma næstu 72 klst samkvæmt UWC/IG spálíkaninu.
Veðurstofan þiggur gjarnan tilkynningar um ofanflóð. Hægt er að hafa samband í síma 522-6000 á opnunartíma skiptiborðsins (https://www.vedur.is/um-vi/hafa-samband/) eða senda tölvupóst með upplýsingum á netfangið skriduvakt@vedur.is. Gott er að láta fylgja mynd af flóðinu (skriðunni, grjóthruninu) og nákvæma staðsetningu auk tímasetningar, hvenær ofanflóðið féll eða hvenær fólk varð vart við það. Einnig er hægt að tilkynna ofanflóð með þessu formi hér.