BETA
26.04.2026
Skil ganga upp að landinu aðfaranótt mánudagsins 27. apríl og bera með sér hlýindi, hvassviðri og úrkomu. Spáin gerir ráð fyrir úrkomu eða vætu og hlýindum samfara hvassvirði á öllu landinu næstu þrjá sólarhringa. Mesta úrkoman er væntanleg á vestanverðu landinu og má búast við nokkurri úrkomu til fjalla, en ekki er gert ráð fyrir mikilli úrkomu í grennd við byggð næstu daga.
Víða er mikill snjór í fjalllendi landsins, einkum á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum. Hvassviðri og hlýindi næstu daga munu ýta undir leysingar og samkvæmt afrennslisspá úr Harmonie IS‑IG líkaninu er gert ráð fyrir talsverðri snjóbráðnun víða um land fram á miðvikudag, þegar kólnar á ný.
Skriðuvakt Veðurstofunnar mun fylgjast náið með aðstæðum á næstu sólarhringum, en gera má ráð fyrir að skriðu‑ og grjóthrunshætta geti aukist á næstu dögum.

ig-27-april

leysingar-27-april