Úrkomusamt á Siglufirði – líkur á skriðuföllum

20.06.2026

Nýtt

Úrkomusamt á Siglufirði – líkur á skriðuföllum

Rignt hefur meira en veðurspár gerðu ráð fyrir í gær. Á Siglufirði hafa mælst 103 mm úrkomu síðustu 48 klukkustundir. Spár gera ráð fyrir áframhaldandi rigningu, með allt að 30 mm úrkomu til viðbótar fram að miðnætti laugardagsins 20. júní. Á morgun, sunnudag 21. júní, er hins vegar útlit fyrir litla sem enga úrkomu.

Jarðvegur er víða orðinn vel mettaður og því er ekki hægt að útiloka hreyfingar í bröttum hlíðum, svo sem jarðvegsskriður og aurskriður, bæði innan og utan farvega. Þar sem vegurinn til og frá Siglufirði liggur víða undir bröttum hlíðum er einnig ekki hægt að útiloka grjóthrun.

Fólki er ráðlagt að sýna aðgát á ferðum sínum, dvelja ekki lengi undir giljum og bröttum hlíðum og vera ávallt vel vakandi fyrir aðstæðum í umhverfinu.

Veðurstofan þiggur gjarnan tilkynningar um ofanflóð. Hægt er að hafa samband í síma 522-6000 á opnunartíma skiptiborðsins (https://www.vedur.is/um-vi/hafa-samband/) eða senda tölvupóst með upplýsingum á netfangið skriduvakt@vedur.is. Gott er að láta fylgja mynd af flóðinu (skriðunni, grjóthruninu) og nákvæma staðsetningu auk tímasetningar, hvenær ofanflóðið féll eða hvenær fólk varð vart við það. Einnig er hægt að tilkynna ofanflóð með þessu formi hér.