Varasamar aðstæður til fjalla í Eyjafirði

19.12.2025

Nýtt

Varasamar aðstæður til fjalla í Eyjafirði

Viðvarandi veikt lag hefur verið í snjóþekjunni frá því í síðustu viku. Snjóflóð féllu við sprengingu í Hlíðarfjalli í síðustu viku og nokkur flóð í Öxnadal. Á miðvikudag féllu snjóflóð ofan við Ólafsfjarðarveg. Í dag, föstudag, hafa fallið tvö náttúruleg snjóflóð í Hlíðarfjalli við lítið álag á snjóþekjuna. Ástæða er fyrir fólk að fara varlega á ferð um brattlendi. Á laugardag hlýnar og geta þá fallið náttúruleg snjóflóð. Þegar kólnar aftur ætti snjóþekjan að styrkjast en veik lög geta þó enn verið til staðar, sérstaklega ofan til í fjöllum.