BETA

Veðurhorfur vegna sólmyrkvans miðvikudaginn 12. ágúst

07.08.2026

Nýtt

Athugið

Veðurhorfur vegna sólmyrkvans miðvikudaginn 12. ágúst

  • Spá gerð kl. 11 föstudaginn 7. ágúst
  • Spáin nær 138 klukkustundir fram í tímann

Á miðvikudag er útlit fyrir að lægð verði staðsett suður af landinu og skil frá henni fari yfir landið, frá suðri um morguninn og fari svo til norðurs og norður af landinu þegar líður á miðvikudagskvöldið.  Þessum skilum fylgir úrkoma  og milt veður.

Spáin fyrir allt landið er svohljóðandi: Austan og norðaustan 5-13 m/s og rigning, en skýjað með köflum og yfirleitt þurrt á Norður- og Austurlandi síðdegis. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast inn til landsins sunnan- og austantil.

Enn er talsverð óvissa um útbreiðslu og tímasetningu skýja og úrkomu. Skiptir þar höfuð máli staðsetning lægða og hreyfingu skila. Þegar skil færast nær landi verðum við fyrst vör við háskýjabreiðu sem þykkar síðan hægt og rólega upp þegar skýjabotninn lækkar

Gera þarf ráð fyrir að spáin taki breytingum, einkum næstu daga, en óvissan minnkar þegar nær dregur. Spáin verður uppfærð tvisvar sinnum á dag, en oftar ef þurfa þykir.


Spákort kl. 18 þann 12. ágúst sýnir djúpa lægð suður af Íslandi og úrkomubelti yfir vestan- og norðanverðu landinu.

Myndin sýnir spá um stöðu veðurkerfa á Atlantshafi kl. 18 miðvikudaginn 12. ágúst. Lægð verður suður af Íslandi og skil frá henni liggja yfir norðanverðu landinu. Úrkoman er táknuð með gulum og grænum litum og má búast við vætu allvíða á vestanverðu landinu og með norðurströndinni, en úrkomulítið á Austurlandi.

Veðurhorfur á almyrkvaslóðum

Höfuðborgarsvæðið

Hæg austlæg átt og rigning eða súld um en væntanlega úrkomulítið um kvöldið og mögulega gætu þá komið göt í skýjahuluna.

Reykjanesskaginn

Austan og suðaustanátt, 3-8 m/s og rigning eða súld, en hægari vindur síðdegis og úrkomulítið um kvöldið. Sennilega skýjað að mestu, en þó ekki útilokað að skýjahulan brotni eitthvað aðeins upp um kvöldið. 

Snæfellsnes

Norðaustan 5-10 m/s og rigning eða súld, en styttir væntanlega upp síðdegis. Þó má gera ráð fyrir að það verði skýjað að mestu og einhverjir skúrir þegar líður á daginn.  

Vestfirðir

Norðaustlæg átt og þykknar upp um morguninn og fer að rigna nærri hádegi. Útlit er fyrir að það stytti upp sunnantil á svæðinu þegar líður á kvöldið.