BETA

Veðurhorfur vegna sólmyrkvans miðvikudaginn 12. ágúst

07.08.2026

Nýtt

Athugið

Veðurhorfur vegna sólmyrkvans miðvikudaginn 12. ágúst

  • Spá gerð kl. 23 föstudaginn 7. ágúst
  • Spáin nær 126 klukkustundir fram í tímann

Á miðvikudag er útlit fyrir að lægð verði staðsett suður af landinu og skil frá henni fari yfir landið, frá suðri um morguninn og fari svo til norðurs og norður af landinu þegar líður á miðvikudagskvöldið.  Þessum skilum fylgir úrkoma  og milt veður.

Spáin fyrir allt landið er svohljóðandi:

Austan og norðaustan 3-10 m/s og rigning, en skýjað með köflum og úrkomuminna á Norður- og Austurlandi. Hiti 8 til 18 stig, svalast við norðurströndina.

Enn er allnokkur óvissa um útbreiðslu og tímasetningu skýja og úrkomu, þótt eftir því sem nær dregur minnki óvissan. Eins og staðan er núna er verður skýjað mjög víða, en enn er allnokkuð svigrúm fyrir breytingar. Hins vegar minnkar breytileikinn milli óskyldra reiknilíkana sem gefur til kynna að við séum að nálgast líklegt veður á miðvikudag. Háupplausnarlíkönin byrja að ná fram á miðvikudagskvöld seint á sunnudag og þá ætti að fara að skýrast betur hin ýmsu skýjalög ásamt úrkomutegund og magni.  

Gera má ráð fyrir að spáin taki breytingum næstu daga, en spáin er uppfærð tvisvar sinnum á dag og oftar ef þurfa þykir.

myndin sýnir djúpa lægð

Litlar breytingar eru á staðsetningu lægðarinnar en úrkomusvæðið er dálítið breytt. Varast þarf að oftúlka það ekki enda frekar langt í sólmyrkvan. Ekki er óvanalegt að spáin sýni miklar breytingar þetta langt fram í tímann.

Veðurhorfur á almyrkvaslóðum

Höfuðborgarsvæðið

Hæg austlæg átt og rigning eða súld um en væntanlega úrkomuminna um kvöldið. Litlar líkur að göt myndist í skýjahuluna.

Reykjanesskaginn

Austlæg átt, 3-8 m/s og rigning eða súld og úrkomuminna um kvöldið. Líklega alskýjað og ekki að sjá að skýjahulan brotni neitt upp. 

Snæfellsnes

Austan og norðaustan 5-10 m/s og rigning eða súld, en gæti verið þurrt framan af degi, hér þyrfti ekki miklar breytingar til að það yrði þurrt á meðan sólmyrkvinn gengi yfir en samt sem áður skýjað. Líklega meiri úrkoma um kvöldið. 

Vestfirðir

Norðaustlæg átt og skýjað en úrkomulítið fram á kvöld, líklega bjartara yfir á suðurfjörðunum og á norðanverðum Breiðafirði en t.d. í Ísafjarðardjúpi.