21.02.2026
Nýtt
Talsverður snjór er nú á Norðurlandi og Austfjörðum. Veikleikar hafa fundist í snjógryfjum síðustu daga og flekaflóð hafa fallið. Í dag laugardag féllu m.a. tvö breið flekaflóð í sólskininu á Norðurlandi, í Hvanneyrarskál ofan við Siglufjörð og í suðurhlíð Útburðarskálarhnjúks í Fjörðum. Flóðið í Fjörðum hefur sennilega farið af stað vegna umferðar vélsleða.
Svæðisbundnar snjóflóðaspár fyrir utanverðan Tröllaskaga, Eyjafjörð og Austfirði eru á appelsínugulum, þ.e. snjóflóðahætta er töluverð. Mannaferðir í og undir bröttum brekkum geta auðveldlega sett af stað snjóflóð og miðlungsstór og einstaka stór náttúruleg snjóflóð geta fallið. Ekki er gerð svæðisbundin snjóflóðaspá fyrir Flateyjarskaga, en reikna má með að aðstæður þar séu svipaðar og á Tröllaskaga, jafnvel er aðeins meiri snjór á Flateyjarskaga.
Útivistarfólk er beðið um að fara varlega og gleyma sér ekki í gleðinni og góða veðrinu.

Hvanneyrarskál ofan við Siglufjörð

Útburðarskálarhnjúkur í Fjörðum