22.04.2026
Nýtt
Snjó hefur tekið hratt upp síðustu daga og hann yfirleitt að verða blautur í gegn og býsna stöðugur. Þó er ennþá hætta á nokkuð stórum flekahlaupum þar sem veik lög grófust djúpt í snjóþekjuna í lok mars og byrjun apríl. Í gær féll um 250 breitt flekahlaup undan vélsleða í brattri sólbakaðri hlíð á Upsadal vestan Dalvíkur. Flekinn var um 1 m þykkur þar sem hann fór af stað í um 700 m hæð. Það er því full ástæða til að varast sólbakaðar hlíðar þar sem enn er mikill snjór.
Hætta á krapahlaupum í giljum og vatnsfarvegum getur skapast þar sem mikill snjór bráðnar hratt og hafa nokkur slík fallið undanfarið. Jörðin undir getur einnig orðið vatnsmettuð og aurskriður fallið. Við þessar aðstæður eru einnig auknar líkur á grjóthruni.

Breitt og þykkt flekahlaup féll undan vélsleða í sólbakaðri hlíð Mjódals á Upsadal vestan Dalvíkur í gær, beltahjól fyrir miðri mynd og Böggvisstaðafjall og mynni Svarfaðardals í baksýn.