28.05.2026
Nýtt
Spáð er vaxandi norðaustanátt í dag, fimmtudag, á A- og NA-landi með snjókomu til fjalla en rigningu á láglendi í fyrstu en svo tekur að kólna á föstudag og má búast við að þá snjói einnig á láglendi. Spár gera ráð fyrir áframhaldandi norðaustanátt um helgina en að það dragi töluvert úr ákefð og að úrkoma falli aftur sem rigning á láglendi. Uppsöfnuð úrkoma í þessu veðri frá fimmtudegi fram á sunnudagsmorgun er nokkuð yfir 100 mm í fjöllum á Austfjörðum og þar sem hún fellur sem snjór má búast við um 1 m af nýjum snjó. Ekki er gert ráð fyrir miklum vindi en þó má búast við skafrenningi til fjalla og að snjór safnist í þykkari vindfleka ofarlega í fjöllum í austlægum viðhorfum.
Það er enn talsverður gamall snjór ofarlega í fjöllum sem er jafnhita, einsleitur og stöðugur. Þegar nýr snjór leggst ofan á gamlan vorsnjó getur hann hins vegar bundist illa við þann eldri með aukinni snjóflóðahættu. Gera þarf ráð fyrir að snjórinn sem bætist í fjöll næstu daga geti orðið óstöðugur og að það taki nokkurn tíma þangað til hann styrkist og bindst við eldri vorsnjó sem er fyrir.

Spákort sem gildir föstudag 29.maí kl kl 8:00. (Fjölublátt: snjókoma/slydda; Grænt: rigning; Tölur: mm/klst)

Spákort sem sýnir tveggja sólarhringa (72klst) uppsafnaða úrkomu.