Á þessari síðu eru birtar skýrslur sem tengjast langtímahættumati eldfjallavár á Reykjanesskaga. Hér má finna yfirlitsskýrslur og sértækari skýrslur um einstaka váþætti og landsvæði. Niðurstöðurnar eru ætlaðar til að styðja skipulag, undirbúning og ákvarðanatöku til lengri tíma, en eru ekki spá um hvar eða hvenær næst gýs.

Skýrslan setur fram langtímahættumat vegna hraunavár á höfuðborgarsvæðinu og sýnir hvar líkur eru á gosupptökum og hraunflæði innan sveitarfélaganna á svæðinu. Áhersla er lögð á byggð svæði og mikilvæga innviði, einkum í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi, Reykjavík og Mosfellsbæ, þar sem hraun frá eldstöðvakerfum Krýsuvíkur og Brennisteinsfjalla gætu haft áhrif.