Hvað er loftslagsþjónusta vegna aðlögunar?

Hvað er loftslagsþjónusta vegna aðlögunar?

Loftslagsþjónusta

Loftslagsþjónusta felur í sér notkun, túlkun og miðlun loftslagstengdra gagna, uppplýsinga og þekkingar sem styður við ákvarðanatöku um aðlögun að loftslagsbreytingum. Slík þjónusta reiðir sig á góð samskipti við notendur svo unnt sé að styðja við að réttar ákvarðanir séu teknar á réttum tíma.

Loftslagsþjónusta er notuð til þess að leita svara við spurninum af ýmsum toga:

  • Hvers konar nytjaplöntur ætti að rækta næstu misserin á mínu svæði með tilliti til mögulegra úrkomubreytinga vegna hlýnandi loftslags?

  • Eru innviðir sveitarfélagsins míns undirbúnir undir þær breytingar sem vænta má með breyttu úrkomumynstri og hækkandi sjávarstöðu?

  • Hvernig hafa sjávarstöðubreytingar áhrif á innviði við strandlengjuna?

  • Hvers konar klæðningu og einangrun ætti að nota við hönnun nýbygginga eða endurbætur bygginga út frá upplýsingum um aukin ofsaveður og hlýnandi loftslag?

  • Hvernig þjálfun þarf starfsfólk heilbrigðiskerfisins miðað við gögn um aukningu smitsjúkdóma vegna hlýnandi loftslags?

Veðurstofa Íslands ber ábyrgð á loftslagsþjónustu á Íslandi og nýtir meðal annars gögn frá loftslagsþjónustu Evrópu (Copernicus), Alþjóðaveðurfræðistofnuninni (WMO) og innlendum stofnunum.

Aðlögun að loftslagsbreytingum

Áhrifa loftslagsbreytinga er þegar farið að gæta á Íslandi og ljóst að um er að ræða áskorun til framtíðar. Það verður því sífellt mikilvægara að horfa til loftslagsbreytinga við skipulagsgerð og stefnumótun svo unnt sé að búa samfélagið undir gjörbreyttan veruleika. Í því felst aðlögun.

Vísindanefnd um loftslagsbreytingar, 2023

Loftslagsaðgerðum er oft skipt í aðlögunaraðgerðir og mótvægisaðgerðir.

Aðlögunaraðgerðir

Aðlögunaraðgerðir felast í því að undirbúa samfélög, fólk, kerfi og náttúru undir áhrif loftslagsbreytinga, lágmarka skaðlegar afleiðingar þeirra og nýta möguleg tækifæri. Aðlögun er lykilþáttur í því að tryggja langtímaviðbragð við loftslagsbreytingum með það að markmiði að vernda fólk, lífsviðurværi og vistkerfi. Aðlögunaraðgerðir miðast oft að tilteknum geirum, hópum eða kerfum og eru því staðbundnar aðgerðir.

Mótvægisaðgerðir

Mótvægisaðgerðir fela í sér kolefnisbindingu og samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Mótvægisaðgerðir eru skilgreindar sem hnattrænar.

Mikilvægt er að ná fram samlegð á milli mótvægis- og aðlögunaraðgerða til þess að koma í veg fyrir að þær vinni hver á móti annarri. Þannig mega aðlögunaraðgerðir ekki stuðla að auknum útblæstri og mótvægisaðgerðir mega ekki vinna gegn aðlögun.

Viðkvæmni- og áhættumat

Til þess að aðlögun verði hvað árangursríkust þarf að taka mið af loftslagsáhættu allra geira og samfélagshópa og forgangsraða aðgerðum í samræmi við hana. Þess vegna er viðkvæmni- og áhættumat vegna loftslagsbreytinga mikilvægur hluti af aðlögun. Loftslagsþjónustur veita mikilvæg gögn og upplýsingar inn í slíkt mat.

Um er að ræða kerfisbundið mat sem nýtist til þess að skilja hver eða hvað er útsett fyrir afleiðingum loftslagsbreytinga, hvers vegna og hversu alvarlegar afleiðingar loftslagsbreytingar gætu haft á viðeigandi, í nútíð eða framtíð. Það hjálpar okkur að svara spurningunni:

Hvað getur farið úrskeiðis vegna loftslagsbreytinga, hversu slæmt gæti það orðið og hver eða hvað verður fyrir mestu áhrifunum?

Viðkvæmni- og áhættumat samanstendur af greiningu á:

  • Hættu eða vá (e. hazard) sem er sá möguleiki að atburður eða þróun eigi sér stað sem geti valdið manntjóni, líkamstjóni, heilsufarskvillum sem geta skaðað eða valdið tjóni á eignum, innviðum, lífsviðurværi, þjónustu, vistkerfum og auðlindum.

  • Varnarleysi eða berskjöldun (e. exposure) sem lýsir því þegar fólki, lífsviðurværi, lífverum eða vistkerfum, náttúrulegum ferlum, þjónustu og auðlindum, innviðum eða efnahagslegum, félagslegum eða menningarlegum verðmætum er stefnt í voða.

  • Viðkvæmni eða tjónnæmi (e. vulnerability), sem vísar til stöðu eða fyrirkomulags sem bendir til að ákveðnar líkur séu á tjóni.

Í tengslum við gerð fyrstu aðlögunaráætlunar Íslands vegna loftslagsbreytinga framkvæmdi Veðurstofa Íslands bráðabirgða viðkvæmni- og áhættumat Íslands.

Loftslagsþjónusta

Aðlögun að loftslagsbreytingum

Aðlögunaraðgerðir

Mótvægisaðgerðir

Viðkvæmni- og áhættumat