BETA
28.08.2026
Nýtt
Fimmtudaginn 20. ágúst var bylgjuvíxlmælitækið (e. GB-InSAR) sem staðsett er í Vestdal flutt til Eskifjarðar sem hluti af árlegu eftirliti. Þetta er gert til að nýta mælitækið sem best á svæðinu, og er gert á þessum árstíma vegna skaplegra aðstæðna þ.e. gróðurþekju. Búið er að flytja mælitækið aftur á sinn stað í Vestdal, Seyðisfirði. Mælitækið mælir breytingar á yfirborði í Strandartind og ytri hluta Neðri-Botna.