BETA
Dregur úr úrkomu á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum en skriðuhætta enn viðvarandi
27.09.2026
Athugið
Eins og hefur komið fram hefur verið úrkomusamt á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum undanfarnar daga. Slydda og snjókoma til fjalla og rigning á láglendi hafa verið viðvarandi síðan á föstudaginn á svæðinu.
Úrkomutölur sýna að úrkoma hefur dregið úr síðan í gær en vegna mikillar bleytu í hlíðunum er enn hætta á yfirborðshreyfingum, svo sem aurskriðum, jarðvegsskriðum og grjóthruni. Spáð er áframhaldandi úrkomu á svæðinu fram á mánudag, þó með minni ákefð. Hiti verður svipaður eða jafnvel eitthvað lítillega hærri, þannig að snjólínan færist ofar í fjöllin.
Yfirlit yfir úrkomutölur síðustu daga á svæðinu fylgir með. Tölurnar eru frá sjálfvirkum og mönnuðum stöðvum Veðurstofu Íslands og eru enn óyfirfarnar. Gögn sýna uppsafnaða úrkomu í mm frá kl. 09:00 daginn áður.
Föstudagur, 25.9.2026 | Laugardagur, 26.9.2026 | Sunnurdagur, 27.9.2026 | |
|---|---|---|---|
Ísafjörður Tungudalur | 71.9 | 47.6 | 13.5 |
Suðureyri | 70.9 | 60.8 | 21.4 |
Flateyri | 59.7 | 28.3 | 10.2 |
Súðavík | 31.4 | 23.5 | 2.4 |
Bólungarvík | 11 | 56.9 | 20.7 |
Hnifsdalur | 12.4 | 46.8 | 11.4 |
Gjögur | 8.4 | 84.7 | 36 |
Litla-Ávik | 10.7 | 88.3 | 39.1 |
Mælt er með að fylgjast með upplýsingum á vef Vegagerðarinnar og kynna sér veðurspá og viðvaranir.
Veðurstofan þiggur gjarnan tilkynningar um ofanflóð. Hægt er að hafa samband í síma 522-6000 á opnunartíma skiptiborðsins (https://www.vedur.is/um-vi/hafa-samband/) eða senda tölvupóst með upplýsingum á netfangið skriduvakt@vedur.is. Gott er að láta fylgja mynd af flóðinu (skriðunni, grjóthruninu) og nákvæma staðsetningu auk tímasetningar, hvenær ofanflóðið féll eða hvenær fólk varð vart við það. Einnig er hægt að tilkynna ofanflóð með þessu formi hér.