BETA
12.08.2026
Nýtt
Athugið
Í dag er lægð rétt suður af Reykjanesi og veðraskil hennar fara yfir stærstan hluta landsins. Í framhaldinu er útlit fyrir að lægðin þokist austur með suðurströndinni. Úrkoma verður einkum bundin við sunnanvert landið en úrkomuminna á Breiðafirði og Vestfjörðum fram undir kvöld, en skilin virðast þá ætla að ganga yfir. Því verða líklega mestar líkur á að skýjahulan brotni upp á því svæði í kringum sólmyrkvann. Fyrir norðan verður þurrt fram eftir degi. Hér neðst má finna nákvæmari veðurspár fyrir hvert spásvæði á vesturhluta landsins, m.t.t. sólmyrkvans.
Í líkönum Veðurstofunnar er að finna þrenn skýjalög, há- mið- og lágský. Háský hafa lítil áhrif á sólmyrkvann þar sem sólarljós á frekar auðvelt með að brjótast í gegnum þau. Í gegnum þau sjáum við t.d. rosabaug. Miðskýin hleypa minna í gegnum sig en alls ekki útilokað að hægt sé að njóta sólmyrkvans. Ef lágskýjasvæði liggur yfir eru líkurnar hins vegar litlar á að eitthvað sjáist til sólar. Myrkvans verður samt vart í slíkum aðstæðum.
Heildarskýjahulan gefur til kynna að nánast verði alskýjað yfir landinu kl. 18 (græn mynd) en göt á lágskýjahulu eru líklegust við Breiðafjörð og á Vestfjörðum. Á suðvesturhorninu er útlit fyrir óstöðugt loft og skúri. Það þýðir að inn á milli skúra getur sést til sólar og með heppni geta slík göt hitt á sólmyrkvann.
Efri myndin er frá nýjustu keyrslu IG-háupplausnarlíkansins, en neðri sýnir DINI-háupplausnarlíkanið.

Skýjahula úr IG háupplausnarlíkaninu, nýjasta keyrsla frá kl. 09 þann 12. ágúst.

Skýjahula úr DINI háupplausnarlíkaninu, nýjasta keyrsla frá kl. 09 þann 12. ágúst.
Almennt eru skýjahuluspár þær afurðir sem hvað erfiðast er að reikna þar sem eðlisfræðin á bak við þær er mjög flókin. Því ber að taka svona smágötum með fyrirvara. Spárnar gefa frekar til kynna að göt gætu myndast í skýjahulu á svæðinu og ekki er hægt að staðsetja þau nákvæmlega.
Austlæg átt 5-13 m/s, hvassast við suðurströndina. Rigning eða skúrir, en úrkomuminna á norðanverðu landinu fram eftir degi. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast fyrir norðan.
Úrkomuspákort hér fyrir neðan frá IG og DINI, háupplausnalíkönum Veðurstofunnar, sem gilda kl. 18 á miðvikudag sýna hvar rigning muni falla og umfang svæðisins, og aftur sést að erfitt er að meta nákvæma staðsetningu.

Úrkoma og vindur í IG háupplausnarlíkaninu, nýjasta keyrsla frá kl. 09 þann 12. ágúst.

Úrkoma og vindur í DINI háupplausnarlíkaninu, nýjasta keyrsla frá kl. 09 þann 12. ágúst.
Fremur hæg austlæg eða norðaustlæg átt, skýjað og skúrir. Möguleiki er á að göt myndist á milli skúra svo hægt sé að sjá sólmyrkvann, en það eru ekki miklar líkur.
Svipað útlit og með höfuðborgarsvæðið, norðaustlæg átt og skúrir Ekki miklar líkur á að göt myndist í skýjahuluna.
Austanátt og líklega skýjað, en skúrir. Þar sem skilin eru seinnilega að leysast upp í kringum sólmyrkvahámark eru líkur á að lág- og miðskýjahulan brotni upp á stöku stað.
Fremur hæg norðaustlæg átt og skúrir á stöku stað. Útlit fyrir háský. Brotin lágskýjahula vestantil og líkur á götum í miðskýjum, einkum norðvestantil. Einhverjar líkur eru á að sjáist til myrkvans á þessum slóðum.