BETA
10.08.2026
Nýtt
Athugið
Spá gerð mánudaginn 10. ágúst kl. 23
Spáin nær 43 klukkustundir fram í tímann
Á miðvikudag er gert ráð fyrir að lægð komi upp að sunnanverðu landinu. Nýjustu veðurlíkanakeyrslur reikna með að hún verði skammt suður af Reykjanesinu síðdegis á miðvikudag og fari veðraskil hennar yfir stærstan hluta landsins. Síðan er útlit fyrir að hún þokist austur með suðurströndinni í framhaldinu. Úrkoma verði einkum bundin við sunnanvert landið en úrkomuminna í Breiðafirði og á Vestfjörðum fram undir kvöld, en skilin virðast ætla að ganga yfir svæðið með kvöldinu. Því verða líklega mestar líkur á að skýjahula gæti brotnað upp á því svæði í kringum sólmyrkvann. Einnig verður lengst af þurrt norðanlands fram eftir degi.
Nú eru flest líkön komin með lægðina á svipaðar slóðir og aukast því líkur á að við séum að nálgast rétta staðsetningu lægðarinnar. En er einhver óvissa um umfang skilanna og hve mikið og langt skilin ganga til norðurs upp eftir Faxaflóa. Það mun hafa mikið að segja hve vel eða hvort eitthvað muni sjást til sólmyrkvans.
Nú eru háupplausnarlíkön Veðurstofunnar farin að ná nógu langt til að dekka kl. 18 á miðvikudag. Þar er að finna þrenn skýjalög, há- mið- og lágský. Háský hafa lítil áhrif á sólmyrkvann þar sem sólarljós á frekar auðvelt með að brjótast í gegnum þau. Miðskýin hleypa minna í gegnum sig en alls ekki útilokað að hægt sé að njóta sólmyrkvans. Ef hins vegar liggur lágskýjasvæði yfir eru líkurnar hins vegar litlar á að eitthvað sjáist til sólar eða myrkvans.
Heildarskýjahulan gefur til kynna að nánast verði alskýjað yfir landinu kl. 18 (græn mynd). Hins vegar er að sjá að lágskýjamyndin er dálítið brotin sums staðar vestanlands og á Vestfjörðum. Mið- og háský sýna göt á svipuðum slóðum en ekki á alveg sömu stöðum. Efri myndin er frá nýjustu keyrslu IG-háupplausnarlíkansins, en neðri sýnir DINI-háupplausnarlíkanið, og þar sést að staðsetning gata í skýjahulu er enn á reiki þar sem líkönin eru ekki alveg sammála.
-768x530.webp)
IG háupplausnarlíkanið, nýjasta keyrsla frá 12 að hádegi þann 10. ágúst.

DINI háupplausnarlíkanið, nýjasta keyrsla frá 12 að hádegi þann 10. ágúst.
Almennt eru skýjahuluspár þær afurðir sem hvað erfiðast er að reikna þar sem eðlisfræðin á bak við þær er mjög flókin. Því ber að taka svona smágötum með fyrirvara. Spárnar gefa frekar til kynna að göt gætu myndast í skýjahulu á svæðinu og ekki er hægt að staðsetja þau nákvæmlega.
Spáin fyrir allt landið á miðvikudag er svohljóðandi:
Austan og norðaustan 3-10 m/s, en heldur hvassara með suðurströndinni. Víða skýjað og rigning með köflum, en heldur úrkomuminna norðvestantil um kvöldið. Hiti 8 til 18 stig, svalast við norður- og austurströndina.

Úrkomuspákort (IG) sem gildir kl. 18 á miðvikudag og sýnir með mun meiri nákvæmni hvar rigning muni falla.
Höfuðborgarsvæðið
Fremur hæg austlæg eða norðaustlæg átt, skýjað og rigning. Ansi ólíklegt sé að göt myndist í skýjahuluna í kringum sólmyrkvann.
Reykjanesskaginn
Svipað útlit og með höfuðborgarsvæðið, norðaustlæg átt og rigning, ólíklegt að göt myndist í skýjahuluna.
Snæfellsnes
Austanátt og yfirleitt þurrt fram til hádegis. Rigning með köflum síðdegis. Líklega skýjað, en einhverjar líkur á að lág- og miðskýjahulan gæti brotnað upp á stöku stað, einkum norðantil, fram undir kvöld.
Vestfirðir
Fremur hæg norðaustlæg átt og skýjað að mestu, en lengst af þurrt. Útlit fyrir háský, en líklega göt í láský og miðský, einkum norðvestantil.