BETA

Lokaspá fyrir sólmyrkvann: Mestar líkur á að sjá til sólar við Breiðafjörð og á Vestfjörðum

12.08.2026

Nýtt

Athugið

Lokaspá fyrir sólmyrkvann: Mestar líkur á að sjá til sólar við Breiðafjörð og á Vestfjörðum

Spáin var gerð kl. 16, um 45 mínútum áður en sólmyrkvinn hefst og tæpum tveimur klukkustundum fyrir almyrkvann.

Samkvæmt gervitunglamyndum er lægðin nú rétt suður af Reykjanesi og skil frá henni eru komin inn á land. Með þeim eru öflugir skúrir um landið sunnanvert en á milli rofar til þó að skýjahulan brotni ekki alveg upp. Með heppni geta slík göt á skýjahulunni hitt á sólmyrkvann. Á þetta einnig við um Reykjanes, höfuðborgarsvæðið og Faxaflóasvæðið.

Gervitunglamynd af Íslandi og hafsvæðinu umhverfis. Lægð er rétt sunnan við Reykjanes og skýjabreiða liggur yfir mestöllu landinu, en rof eru í skýjahulunni á stöku stað. Græn og blá ratsjármerki sýna úrkomu, einkum yfir vestan- og sunnanverðu landinu.

Gervitunglamynd frá MTG-gervitungli EUMETSAT kl. 15:00 þann 12. ágúst 2026. Ratsjárendurkast frá veðurratsjám Veðurstofunnar er lagt yfir myndina. Grænir og bláir litir sýna úrkomu. Mynd: EUMETSAT og Veðurstofa Íslands.

Lægðin mun síðan þokast austur með suðurströndinni. Úrkoma verður áfram einkum bundin við sunnanvert landið en úrkomuminna á Breiðafirði og Vestfjörðum og enn eru mestar líkur á að lágskýjahulan brotni upp á því svæði í kringum almyrkvann. Í deildarmyrkvanum eru mestur líkur á að sjáist til sólar í kringum Tröllaskaga og Héraðsflóa. Hér neðst má finna nákvæmari veðurspár fyrir hvert spásvæði á vesturhluta landsins, m.t.t. sólmyrkvans.

Í líkönum Veðurstofunnar er að finna þrenn skýjalög, há- mið- og lágský. Háský hafa lítil áhrif á sólmyrkvann þar sem sólarljós á frekar auðvelt með að brjótast í gegnum þau. Í gegnum þau sjáum við t.d. rosabaug. Miðskýin hleypa minna í gegnum sig en alls ekki útilokað að hægt sé að njóta sólmyrkvans. Ef lágskýjasvæði liggur yfir eru líkurnar hins vegar litlar á að eitthvað sjáist til sólar. Myrkvans verður samt vart í slíkum aðstæðum.

alt=""

Skýjahula úr IG háupplausnarlíkaninu, nýjasta keyrsla frá kl. 12 þann 12. ágúst.

Almennt eru skýjahuluspár þær afurðir sem hvað erfiðast er að reikna þar sem eðlisfræðin á bak við þær er mjög flókin. Því ber að taka smágötum með fyrirvara. Spárnar gefa frekar til kynna að göt gætu myndast í skýjahulu á svæðinu og ekki er hægt að staðsetja þau nákvæmlega.  

Spáin fyrir allt landið í dag er svohljóðandi:  

Austlæg átt 5-13 m/s, hvassast við suðurströndina. Rigning eða skúrir, en úrkomuminna á norðanverðu landinu fram eftir degi. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast fyrir norðan.  

Úrkomuspákort hér fyrir neðan frá IG, háupplausnalíkani Veðurstofunnar, sem gildir kl. 18 í dag sýnir hvar rigning muni falla og umfang svæðisins, og aftur sést að erfitt er að meta nákvæma staðsetningu.

alt=""

Úrkoma og vindur í IG háupplausnarlíkaninu, nýjasta keyrsla frá kl. 12 þann 12. ágúst.

Veðurhorfur á almyrkvaslóðum   

Höfuðborgarsvæðið  

Fremur hæg austlæg eða norðaustlæg átt, skýjað og skúrir. Möguleiki er á að göt myndist á milli skúra svo hægt sé að sjá sólmyrkvann, en það eru ekki miklar líkur.

Reykjanesskaginn  

Svipað útlit og með höfuðborgarsvæðið, norðaustlæg átt og öflugir skúrir en á milli rofar til þó að skýjahulan brotni ekki alveg upp. Ekki miklar líkur á að göt myndist í skýjahuluna.  

Snæfellsnes   

Austanátt og skýjað, en skúrir. Þar sem skilin eru sennilega að leysast upp í kringum sólmyrkvahámark eru líkur á að lág- og miðskýjahulan brotni upp á stöku stað.  

Vestfirðir 

Fremur hæg norðaustlæg átt og skúrir á stöku stað. Útlit fyrir háský. Brotin lágskýjahula vestantil og líkur á götum í miðskýjum, einkum norðvestantil. Líkur eru á að sjáist til myrkvans á þessum slóðum.