Mikil uppsöfnuð úrkoma á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum

26.09.2026

Athugið

Mikil uppsöfnuð úrkoma á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum

Mikil úrkoma hefur verið á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum síðan á fimmtudag. Mesta úrkoman hefur mælst á Suðureyri yfir 120 mm. Einnig hafa mælst yfir 100 mm á Ísafirði og Gjögri. Úrkoman byrjaði sem slydda til fjalla en það hefur kólnað og nú snjóar ofan 200-400 m. Nokkuð hefur verið um grjót sem hefur fallið á vegi og Strandavegi milli Bjarnafjarðar og Djúpavíkur var lokað eftir að skriða féll á veginn á föstudag. Enn er hætta á skriðum og grjóthruni á svæðinu sérstaklega úr neðri hlutum hlíða þar sem ekki snjóar.

Spáð er áframhaldandi úrkomu á svæðinu fram á mánudag.

Mælt er með að fylgjast með upplýsingum á vef Vegagerðarinnar og kynna sér veðurspá og viðvaranir.

Veðurstofan þiggur gjarnan tilkynningar um ofanflóð. Hægt er að hafa samband í síma 522-6000 á opnunartíma skiptiborðsins (https://www.vedur.is/um-vi/hafa-samband/) eða senda tölvupóst með upplýsingum á netfangið skriduvakt@vedur.is. Gott er að láta fylgja mynd af flóðinu (skriðunni, grjóthruninu) og nákvæma staðsetningu auk tímasetningar, hvenær ofanflóðið féll eða hvenær fólk varð vart við það. Einnig er hægt að tilkynna ofanflóð með þessu formi hér.