BETA
24.09.2026
Athugið
Lægðin fer yfir landið í dag og um hádegisbil byrjar að rigna með nokkurri ákefð á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum. Í dag, fimmtudag, er gert ráð fyrir að úrkoman falli í formi rigningar, einnig til fjalla. Þegar vindáttin breytist í norðlæga átt á morgun, föstudag, gerir veðurspáin ráð fyrir að kólni verulega og að hluti úrkomunnar, að minnsta kosti á fjallstoppum, falli í formi snjókomu eða slyddu. Ólíklegt er að snjói við ströndina.
Óvissa ríkir í veðurspánni um úrkomuform og nákvæma leið lægðarinnar yfir landið. Samt sem áður benda líkanreikningar til þess að uppsöfnuð úrkoma verði töluverð á svæðinu. Vegakerfið á Vestfjörðum og Ströndum liggur að stórum hluta undir bröttum hlíðum og skyndilegar yfirborðshreyfingar, svo sem grjóthrun, aurskriður og jarðvegsskriður, geta truflað samgöngur.
Nýjustu keyrslur veðurlíkana sýna að úrkoma heldur áfram fram á sunnudag og á Ströndum fram á mánudag. Uppsöfnuð úrkoma verður því mjög mikil á þessu tímabili, einkum á jökla- og fjallasvæðum. Aukið afrennsli í lækjum og ám getur einnig truflað umferð.
Mælt er með að fylgjast með upplýsingum á vef Vegagerðarinnar og kynna sér veðurspá og viðvaranir.
Veðurstofan þiggur gjarnan tilkynningar um ofanflóð. Hægt er að hafa samband í síma 522-6000 á opnunartíma skiptiborðsins (https://www.vedur.is/um-vi/hafa-samband/) eða senda tölvupóst með upplýsingum á netfangið skriduvakt@vedur.is. Gott er að láta fylgja mynd af flóðinu (skriðunni, grjóthruninu) og nákvæma staðsetningu auk tímasetningar, hvenær ofanflóðið féll eða hvenær fólk varð vart við það. Einnig er hægt að tilkynna ofanflóð með þessu formi hér.

Uppsöfnuð úrkoma næstu 72 klukkustundir, samkvæmt IG-veðurlíkani.