BETA
15.09.2026
Á morgun, miðvikudaginn 16. september, gengur lægð yfir landið frá vestri til austurs og fylgir henni mikil úrkoma á skömmum tíma. Mestri úrkomu er spáð á sunnanverðum Vestfjörðum, Barðaströnd, Reykhólasveit, Snæfellsnesi, Suðurlandi, Suðausturlandi og á Austfjörðum.
Úrkoman verður að mestu í formi rigningar. Hún hefst aðfaranótt miðvikudags vestantil á landinu og færist síðan austur yfir landið. Á Austfjörðum er mestu úrkomunni spáð síðdegis á morgun.
Haustlægðir af þessu tagi eru ekki óvenjulegar á þessum árstíma en búast má við talsverðri rigningu og mikilli úrkomuákefð á skömmum tíma. Við slíkar aðstæður má ekki útiloka yfirborðshreyfingar, svo sem grjóthrun, og aukinn framburð í lækjum og ám.
Þar sem vegir liggja gjarnan undir bröttum hlíðum er rétt að sýna aðgát á ferðinni og fylgjast með upplýsingum á vef Vegagerðarinnar.
Veðurstofan þiggur gjarnan tilkynningar um ofanflóð. Hægt er að hafa samband í síma 522-6000 á opnunartíma skiptiborðsins (https://www.vedur.is/um-vi/hafa-samband/) eða senda tölvupóst með upplýsingum á netfangið skriduvakt@vedur.is. Gott er að láta fylgja mynd af flóðinu (skriðunni, grjóthruninu) og nákvæma staðsetningu auk tímasetningar, hvenær ofanflóðið féll eða hvenær fólk varð vart við það. Einnig er hægt að tilkynna ofanflóð með þessu formi hér.

Uppsöfnuð úrkoma næstu 72 klukkustundir, samkvæmt IG-veðurlíkani.