BETA
28.09.2026
Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag munu nokkrar lægðir fara yfir landið. Þeim fylgir mikil úrkoma á Suðurlandi, Suðausturlandi og á sunnanverðum Austfjörðum. Einnig er búist við umtalsverðri úrkomu á norðanverðum Austfjörðum, á Ströndum, á Miðhálendinu og á Snæfellsnesi.
Á Vestfjörðum, einkum á Ströndum, munu leysingar einnig auka vatnavexti í ám og lækjum. Vegna úrkomu síðustu daga er jarðvegur nú þegar mettaður af vatni og úrkoma næstu daga mun auka enn frekar vatnsþrýsting í hlíðum og jarðlögum.
Haustlægðir af þessu tagi eru ekki óvenjulegar á þessum árstíma en búast má við talsverðri rigningu og mikilli úrkomuákefð á skömmum tíma. Við slíkar aðstæður má ekki útiloka yfirborðshreyfingar, svo sem grjóthrun, aurskriður og aukinn framburð í lækjum og ám.

Uppsöfnuð úrkoma næstu 72 klukkustundir, samkvæmt IG-veðurlíkani.
Skriðuvakt Veðurstofu Íslands fylgist náið með þróun mála og mun birta uppfærðar upplýsingar, fréttir og eftir atvikum sérstakar viðvaranir þegar tilefni er til.
Þar sem vegir liggja gjarnan undir bröttum hlíðum er rétt að sýna aðgát á ferðinni og fylgjast með upplýsingum á vef Vegagerðarinnar.
Almenningur er hvattur til að tilkynna skriðuvaktinni um skriður og grjóthrun. Hægt er að senda tilkynningu á netfangið skriduvakt@vedur.is eða nota rafrænt eyðublað fyrir tilkynningar um ofanflóð. Gott er að tilgreina nákvæma staðsetningu og hvenær skriðan eða grjóthrunið varð. Ef það er ekki vitað nægir að segja hvenær þess varð vart. Látið myndir fylgja ef kostur er. Skriðuvaktin fer yfir tilkynningarnar og reynir að staðfesta þær áður en þær eru færðar í ofanflóðagagnagrunn Veðurstofunnar.